Þrjátíu starfsmenn Landspítala eru í einangrun með kórónuveiruna og 176 eru í sóttkví. Fresta hefur þurft aðgerðum vegna þeirrar stöðu sem uppi er komin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala en spítalinn er nú á hættustigi vegna kórónuveirufaraldursins. Einangrun og sóttkví starfsmanna hefur haft áhrif á starfsemi í skurðlækningaþjónustu og hefur nú um 60 aðgerðum verið frestað, að því er fram kemur í frétt Mbl. Aðgerðum er þó forgangsraðað þannig að allar brýnar aðgerðir á borð við krabbameinsaðgerðir eru framkvæmdar. Þá hafa 40 starfsmenn á Hringbraut verið boðaðir í skimun fyrir veirunni í dag. Dregið verður úr starfsemi göngudeilda A3 og B3 til að styrkja Covid-göngudeild spítalans. Gert er ráð fyrir að sú ráðstöfun gildi fram yfir helgi. Einn liggur inni á spítalanum með veiruna og 357 sjúklingar eru í eftirliti Covid-göngudeildar. Líkt og áður segir eru 176 starfsmenn í sóttkví, þar á meðal forstjórinn Páll Matthíasson og Anna Sigrún Baldursdóttir aðstoðarmaður forstjóra. Þrjátíu starfsmenn eru smitaðir af veirunni og eru í einangrun. Ísland er komið á rauða lista breskra stjórn­valda sem þýðir að all­ir þeir sem ferðast frá Íslandi til Bret­lands frá og með klukk­an 4 að morgni laug­ar­dags, þurfa að fara í 14 daga sótt­kví. Ásamt Íslandi fara Dan­mörk, Slóvakía og Karíbahafs-eyj­an Curacao á rauða lista breskra stjórn­valda. Að því er kem­ur fram í frétt The Even­ing Stand­ard, þá telja bresk stjórn­völd ekki ör­uggt að ferðalang­ar frá Íslandi fari ekki í sótt­kví við kom­una til Bret­lands. „Gögn­in sýna að við verðum að fjar­lægja Ísland, Dan­mörk, Slóvakíu og Curacao, af lista stjórn­valda yfir ör­ugg lönd,“ sagði Grant Shapps, sam­göngu­málaráðherra Bret­lands á Twitter nú síðdeg­is. Fari fólk ekki eft­ir þess­um regl­um má það bú­ast við að lág­marki 1.000 punda sekt, sem jafn­gild­ir um 178 þúsund krón­um. Utanríkisráðuneytið í Kaupmannahöfn ræður Dönum frá því að ferðast til Íslands eins og sakir standa. Þetta kemur fram í nýjum lista sem ráðuneytið birti í dag. Auk Íslands hefur þremur ríkjum til viðbótar verið bætt á listann; Bretlandi, Írlandi og Slóveníu. Í öllum tilfellum eru smit í þessum löndum orðin fleiri á viku en þrjátíu á hverja hundrað þúsund íbúa. Þegar tíðnin er orðin svo mikil ráðleggja stjórnvöld í Danmörku landsmönnum að ferðast ekki til landanna að nauðsynjalausu. Nítján Evrópuríki til viðbótar eru á lista danska utanríkisráðuneytisins. Bresk stjórnvöld fjarlægðu Ísland í dag af lista yfir þau ríki sem teljast örugg vegna kórónuveirufaraldursins. Bretar tilkynntu um metfjöldi nýrra smita í dag. Grant Shapps, samgönguráðherra, tilkynnti síðdegis að Ísland, Danmörk, Slóvakía og karabíska eyjan Curaco væru nú ekki talin örugg. Það þýðir að allir sem koma frá þeim löndum þurfa að fara í tveggja vikna sóttkví við komuna til Englands. Ef reglur um sóttkví eru brotnar varðar það sektum frá þúsund pundum að minnsta kosti. Alls greindust 6.634 ný smit í Bretlandi síðasta sólarhringinn og hafa þau aldrei verið fleiri frá upphafi faraldursins. Tilkynnt var um 40 ný andlát vegna COVID-19, en þungamiðja faraldursins hjá Bretum er í Englandi. Stjórn Rauða Krossins hefur síðustu mánuði tekið upp á sameiningu deilda til að draga úr kostnaði vegna fjárhagsvanda í kjölfar kórónaveirufaraldursins. Fjárhagsstaða Rauða Krossins hefur verið erfið vegna COVID-19 og er gríðarlegt álag á starfsmönnum og sjálfboðaliðum Rauða krossins. Í maí var orðið ljóst að faraldurinn myndi hafa mikil áhrif á tekjustofna félagsins. Var þá rætt um möguleika til hagræðingar bæði hjá landsskrifstofu og félaginu öllu. Fjölmargar breytingar hafa í kjölfarið verið gerðar á skipulagi Rauða krossins. Svæðisfulltrúum Rauða krossins, þ.e. launuðum fulltrúm deilda víða um landið, hefur verið sagt upp. Sérstakur neyðarvarnarfulltrúi sem sér um samhæfingu neyðarvarna alls staðar á landinu hefur verið ráðin inn. UEFA hefur tilkynnt þá ákvörðun að fimm skiptingar verða leyfðar í mótum á vegum UEFA tímabilið 2020-2021. Breytingin tekur til móta líkt og Þjóðadeildar UEFA og umspils fyrir EM 2020 hjá A-landsliði karla og undankeppni EM 2022 hjá A-landsliði kvenna. Hinar nýju reglur munu einnig gilda í Meistaradeild Evrópu, karla og kvenna, og Evrópudeildinni. A-landslið karla leikur þrjá leiki í október. Fyrst mætir liðið Rúmeníu í undanúrslitum umspilsins fyrir EM 2020, en síðan mæta strákarnir Dönum og Belgum í Þjóðadeild UEFA. Allir leikirnir fara fram á Laugardalsvelli. A-landslið kvenna mætir Svíþjóð ytra í október í undankeppni EM 2022. Tíu prósent Íslendinga hafa nýtt sér Erasmus-áætlunina frá aðild Íslands að EES og jafn hátt hlutfall ríkisborgara ESB-ríkjanna býr nú á Íslandi, segir Lucie Samcová – Hall Allen, nýr sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi. Hún afhenti Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum nýverið. Lucie Samcová er frá Prag í Tékklandi og hefur starfað fyrir Evrópusambandið síðan 2005, meðal annars fyrir ráðherraráðið og utanríkisþjónustuna. Þá hefur hún einnig starfað fyrir sendinefnd ESB gagnvart Sameinuðu þjóðunum og öðrum alþjóðastofnunum í Genf í Sviss. Hún hefur lokið háskólanámi í blaðamennsku, hagfræði og stjórnun. Knattspyrnustjóri Arsenal segir það verða mjög erfitt fyrir Mesut Özil að vinna sér sæti í leikmannahópi liðsins, ekki liðinu heldur hópnum. Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var spurður út í enn eina fjarveruna hjá Mesut Özil þegar liðið mætti Leicester City í enska deildabikarnum í gær. Þetta var fjórði leikur Arsenal á tímabilinu og Mesut Özil hefur aldrei verið í hóp. Arteta svaraði að það yrði mjög erfitt fyrir Þjóðverjann að vinna sér sæti í leikmannahópnum. 
