Þrjátíu starfsmenn Landspítala eru í einangrun með kórónuveiruna og 176 eru í sóttkví .
Fresta hefur þurft aðgerðum vegna þeirrar stöðu sem uppi er komin .
Þetta kemur fram í tilkynningu frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala en spítalinn er nú á hættustigi vegna kórónuveirufaraldursins .
Einangrun og sóttkví starfsmanna hefur haft áhrif á starfsemi í skurðlækningaþjónustu og hefur nú um 60 aðgerðum verið frestað , að því er fram kemur í frétt Mbl .
Aðgerðum er þó forgangsraðað þannig að allar brýnar aðgerðir á borð við krabbameinsaðgerðir eru framkvæmdar .
Þá hafa 40 starfsmenn á Hringbraut verið boðaðir í skimun fyrir veirunni í dag .
Dregið verður úr starfsemi göngudeilda A3 og B3 til að styrkja Covid-göngudeild spítalans .
Gert er ráð fyrir að sú ráðstöfun gildi fram yfir helgi .
Einn liggur inni á spítalanum með veiruna og 357 sjúklingar eru í eftirliti Covid-göngudeildar .
Líkt og áður segir eru 176 starfsmenn í sóttkví , þar á meðal forstjórinn Páll Matthíasson og Anna Sigrún Baldursdóttir aðstoðarmaður forstjóra .
Þrjátíu starfsmenn eru smitaðir af veirunni og eru í einangrun .
Ísland er komið á rauða lista breskra stjórnvalda sem þýðir að allir þeir sem ferðast frá Íslandi til Bretlands frá og með klukkan 4 að morgni laugardags , þurfa að fara í 14 daga sóttkví .
Ásamt Íslandi fara Danmörk , Slóvakía og Karíbahafs-eyjan Curacao á rauða lista breskra stjórnvalda .
Að því er kemur fram í frétt The Evening Standard , þá telja bresk stjórnvöld ekki öruggt að ferðalangar frá Íslandi fari ekki í sóttkví við komuna til Bretlands .
„ Gögnin sýna að við verðum að fjarlægja Ísland , Danmörk , Slóvakíu og Curacao , af lista stjórnvalda yfir örugg lönd , “ sagði Grant Shapps , samgöngumálaráðherra Bretlands á Twitter nú síðdegis .
Fari fólk ekki eftir þessum reglum má það búast við að lágmarki 1.000 punda sekt , sem jafngildir um 178 þúsund krónum .
Utanríkisráðuneytið í Kaupmannahöfn ræður Dönum frá því að ferðast til Íslands eins og sakir standa .
Þetta kemur fram í nýjum lista sem ráðuneytið birti í dag .
Auk Íslands hefur þremur ríkjum til viðbótar verið bætt á listann ; Bretlandi , Írlandi og Slóveníu .
Í öllum tilfellum eru smit í þessum löndum orðin fleiri á viku en þrjátíu á hverja hundrað þúsund íbúa .
Þegar tíðnin er orðin svo mikil ráðleggja stjórnvöld í Danmörku landsmönnum að ferðast ekki til landanna að nauðsynjalausu .
Nítján Evrópuríki til viðbótar eru á lista danska utanríkisráðuneytisins .
Bresk stjórnvöld fjarlægðu Ísland í dag af lista yfir þau ríki sem teljast örugg vegna kórónuveirufaraldursins .
Bretar tilkynntu um metfjöldi nýrra smita í dag .
Grant Shapps , samgönguráðherra , tilkynnti síðdegis að Ísland , Danmörk , Slóvakía og karabíska eyjan Curaco væru nú ekki talin örugg .
Það þýðir að allir sem koma frá þeim löndum þurfa að fara í tveggja vikna sóttkví við komuna til Englands .
Ef reglur um sóttkví eru brotnar varðar það sektum frá þúsund pundum að minnsta kosti .
Alls greindust 6.634 ný smit í Bretlandi síðasta sólarhringinn og hafa þau aldrei verið fleiri frá upphafi faraldursins .
Tilkynnt var um 40 ný andlát vegna COVID-19 , en þungamiðja faraldursins hjá Bretum er í Englandi .
Stjórn Rauða Krossins hefur síðustu mánuði tekið upp á sameiningu deilda til að draga úr kostnaði vegna fjárhagsvanda í kjölfar kórónaveirufaraldursins .
Fjárhagsstaða Rauða Krossins hefur verið erfið vegna COVID-19 og er gríðarlegt álag á starfsmönnum og sjálfboðaliðum Rauða krossins .
Í maí var orðið ljóst að faraldurinn myndi hafa mikil áhrif á tekjustofna félagsins .
Var þá rætt um möguleika til hagræðingar bæði hjá landsskrifstofu og félaginu öllu .
Fjölmargar breytingar hafa í kjölfarið verið gerðar á skipulagi Rauða krossins .
Svæðisfulltrúum Rauða krossins , þ.e. launuðum fulltrúm deilda víða um landið , hefur verið sagt upp .
Sérstakur neyðarvarnarfulltrúi sem sér um samhæfingu neyðarvarna alls staðar á landinu hefur verið ráðin inn .
UEFA hefur tilkynnt þá ákvörðun að fimm skiptingar verða leyfðar í mótum á vegum UEFA tímabilið 2020 - 2021 .
Breytingin tekur til móta líkt og Þjóðadeildar UEFA og umspils fyrir EM 2020 hjá A-landsliði karla og undankeppni EM 2022 hjá A-landsliði kvenna .
Hinar nýju reglur munu einnig gilda í Meistaradeild Evrópu , karla og kvenna , og Evrópudeildinni .
A-landslið karla leikur þrjá leiki í október .
Fyrst mætir liðið Rúmeníu í undanúrslitum umspilsins fyrir EM 2020 , en síðan mæta strákarnir Dönum og Belgum í Þjóðadeild UEFA .
Allir leikirnir fara fram á Laugardalsvelli .
A-landslið kvenna mætir Svíþjóð ytra í október í undankeppni EM 2022 .
Tíu prósent Íslendinga hafa nýtt sér Erasmus-áætlunina frá aðild Íslands að EES og jafn hátt hlutfall ríkisborgara ESB-ríkjanna býr nú á Íslandi , segir Lucie Samcová – Hall Allen , nýr sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi .
Hún afhenti Guðna Th. Jóhannessyni , forseta Íslands , trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum nýverið .
Lucie Samcová er frá Prag í Tékklandi og hefur starfað fyrir Evrópusambandið síðan 2005 , meðal annars fyrir ráðherraráðið og utanríkisþjónustuna .
Þá hefur hún einnig starfað fyrir sendinefnd ESB gagnvart Sameinuðu þjóðunum og öðrum alþjóðastofnunum í Genf í Sviss .
Hún hefur lokið háskólanámi í blaðamennsku , hagfræði og stjórnun .
Knattspyrnustjóri Arsenal segir það verða mjög erfitt fyrir Mesut Özil að vinna sér sæti í leikmannahópi liðsins , ekki liðinu heldur hópnum .
Mikel Arteta , knattspyrnustjóri Arsenal , var spurður út í enn eina fjarveruna hjá Mesut Özil þegar liðið mætti Leicester City í enska deildabikarnum í gær .
Þetta var fjórði leikur Arsenal á tímabilinu og Mesut Özil hefur aldrei verið í hóp .
Arteta svaraði að það yrði mjög erfitt fyrir Þjóðverjann að vinna sér sæti í leikmannahópnum .
