Lýstar kröfur í búið námu rúmlega 71 milljón króna og lauk gjaldþrotaskiptum í lok nóvember, án þess að greiðsla fengist upp í kröfur. Verslunin var rekin í félaginu Ígló ehf. sem stofnað var af systrunum Helgu og Lovísu Ólafsdætrum árið 2008 og sérhæfði sig í hönnun barnafata. Helga, sem titluð var eigandi og yfirhönnuður, tjáði sig um gjaldþrotið á sínum tíma og sagði það hafa verið nokkuð áfall. Það hafi þurft þol og metnað til að hanna og framleiða þær 2500 mismunandi flíkur sem aðstandendur fyrirtækisins gerðu, meðan þess naut við. Fyrirtækið byrjaði að leggja meiri áherslu á erlenda markaði árið 2013 og voru vörur þeirra á tímabili seldar í yfir hundrað verslunum. „Það er flókið fyrir lítil hönnunarfyrirtæki á Íslandi að lifa af. Rekstrarumhverfið er ekki bara sveiflukennt heldur er mjög dýrt að þróa, framleiða, markaðssetja og selja íslenska hönnun hérlendis og erlendis,“ skrifaði Helga við fall fyrirtækisins. „Að hafa lifað af í þessu rekstrarumhverfi í ellefu ár er bara nokkuð gott ef miðað er við sambærileg fyrirtæki í þessum bransa. Það er samt engin huggun í því og að þurfa að kveðja á þennan hátt hefur verið ansi erfitt. Það er erfitt að sætta sig við það hvernig fór.“ Læknar á Landspítalanum eru mjög ósáttir við að laun þeirra lækki í niðurskurðaraðgerðum spítalans. Landspítalinn sagði upp óunninni yfirvinnu lækna sem hluta af aðgerðum til að draga úr kostnaði við rekstur sjúkrahússins. Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands, sagði í Morgunútvarpinu á Rás 2 að mikil óánægja væri vegna þessa. Félagið hefur mótmælt því að hluta ráðningarsamninga lækna sé sagt upp. Hann segir ólaunaða yfirvinnu í raun rangnefni. „Henni er ætlað að greiða fyrir tilfallandi yfirvinnu með jöfnum hætti sem þarf ekki að vera að tímamæla.“ Þetta eigi til dæmis við þegar læknir sé með veikan sjúkling og geti ekki farið, skurðlæknir sé í aðgerð eða læknir að innrita sjúkling fram yfir lok vaktar eða dagvinnu. „Í dag er þetta ekki greitt. Það fæst ekki greidd yfirvinna samkvæmt stimpilmælingunni. Þá hefur verið gripið til þess að hafa fasta yfirvinnu sem tekur á þessu að meðaltali.“ Reynir gagnrýnir að uppsögn óunninnar yfirvinnu nái bara til lækna. Samkvæmt nýjustu tölum sem Læknafélagið hefur hafi yfirstjórn haft tvöfalda óunna yfirvinnu á við lækna. „Við teljum mjög eðlilegt að starfsmenn í framlínu eins og læknar og hjúkrunarfræðingar fái þessa föstu yfirvinnu greidda því að þeir geta ekki hlaupið í burtu en það er mjög sérkennilegt að yfirstjórn spítalans þurfi að gera þetta og í raun og veru skammti sér 400 milljónir í fasta yfirvinnu.“ Reynir sagði uppsögn óunninnar yfirvinnu hafa slæm áhrif á starfsanda. Hann sagðist telja að flestir láti þetta yfir sig ganga en taldi að einhverjir kynnu að hætta. Tíst namibískrar konu á Twitter hefur vakið þó nokkra athygli íslenskra netverja. Konan, Ndilimeke, spyr hvort Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarmaður Samherjafélaganna, sé einhleypur. Fjöldi Íslendinga hefur líkað við tíst Ndilimeke og hefur meðal annars Margrét Erla Maack endurbirt það á sinni Twitter-síðu. Ndilimeke mætti hugsanlega teljast sem namibískur áhrifavaldur, þar sem hún er með yfir 4300 fylgjendur á Instagram og 1200 fylgjendur á Twitter. Gleðifréttir fyrir Ndilimeke, en samkvæmt Facebook-síðu Jóhannesar er hann einhleypur. Árið 2018 kvaðst um þriðjungur íbúa á Íslandi stríða við langvarandi veikindi. Hlutfall fólks sem býr við takmarkanir í daglegu lífi sökum heilsufars hefur aukist undanfarin 10 ár. Árið 2008 var hlutfallið 16,1%, en það var 26,0% 10 árum seinna. Seinustu ár hefur aukningin ekki verið tölfræðilega marktæk á milli ára, en hlutfallið 2018 er þó marktækt hærra en fyrir fimm árum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum úr lífskjararannsókn Hagstofu Íslands. Hlutfallið á Íslandi árið 2018 er svipað og hlutfallið er að jafnaði í ríkjum Evrópusambandsins , en árið 2018 bjuggu að meðaltali 24,7% Evrópubúa við heilsufarslegar takmarkanir. Árið 2018 fundu fæstir fyrir heilsufarslegum takmörkunum á Möltu, eða 11,9%, en flestir í Lettlandi, eða 40,0%. Mælingarnar miða við bæði þá sem búa við nokkrar takmarkanir og verulegar takmarkanir vegna heilsubrests. Á Íslandi skiptist hlutfallið nokkuð jafnt á milli þeirra sem telja að heilsufar hamli daglegu lífi nokkuð og þeirra sem lifa með verulegar takmarkanir vegna heilsubrests. Langtímaveikindi eru algengari meðal kvenna og hafa verið það frá upphafi mælinga, árið 2004. Að sama skapi eru konur líklegri til að finna fyrir takmörkunum í daglegu lífi vegna heilsubrests, miðað við karla. Árið 2018 bjó ein af hverjum þremur konum við heilsufarslegar takmarkanir í daglegu lífi borið saman við einn af hverjum fimm körlum sama ár. Þeir sem eru eldri eiga frekar við langvarandi veikindi að stríða og búa við meiri heilsufarslegar takmarkanir en yngra fólkið. Til dæmis á þriðjungur í aldurshópnum 45-54 ára við langvarandi veikindi að stríða borið saman við nær helming í aldurshópnum 65 ára og eldri. Hærra hlutfall fólks með grunnmenntun býr við langvarandi veikindi og takmarkanir sökum heilsufars borið saman við fólk með háskólamenntun. Árið 2018 bjó til dæmis um einn af hverjum þremur með grunnmenntun við heilsufarslegar takmarkanir borið saman við einn af hverjum fimm með háskólamenntun. Hlutfall þeirra sem lifa með heilsufarslegar takmarkanir í daglegu lífi er einnig hærra meðal þeirra með lágar tekjur, en einn af hverjum þremur í lægsta og öðrum tekjufimmtungi bjó við takmarkanir vegna heilsufars árið 2018. Í hærri tekjufimmtungum hamlaði heilsufar einum af hverjum fjórum til einum af hverjum fimm. Niðurstöðurnar eru unnar úr lífskjararannsókn Hagstofu Íslands. Samhliða birtingu á niðurstöðum fyrir árin 2015-2018 hafa eldri niðurstöður verið endurskoðaðar til að samræmast reglugerðum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat. Áhrif endurskoðunar er sú að hærra hlutfall telst með takmarkanir sökum heilsufars en áður frá og með árinu 2007. Hlutfall fólks sem býr við takmarkanir í daglegu lífi sökum heilsufars byggir á svörum fólks við eftirfarandi spurningu: Í sex mánuði samfleytt eða lengur, hefur heilsufar þitt hamlað eða takmarkað þig á einhvern hátt í einhverju sem reikna má með að flest fólk geti gert? Hlutfallið miðar við bæði þá sem takmarkast og takmarkast verulega sökum heilsufars. Lífskjararannsókn Hagstofunnar er langsniðsrannsókn þar sem haft er samband við hátt í 5 þúsund heimili árlega. Úrtak rannsóknarinnar er fengið á þann hátt að einstaklingar eru valdir með slembni úr þjóðskrá og þar með heimilið sem þeir tilheyra. Sá einstaklingur sem er valinn í úrtakið kallast valinn svarandi og veitir hann upplýsingar um aðstæður heimilis, sínar eigin og annarra heimilismeðlima. Hér er greiningin miðuð við valinn svaranda. Frekari upplýsingar um lífskjararannsóknina má lesa í lýsigögnum. Kostnaður vegna bílaleigubíla fyrir þingmenn nam rúmum 19 milljónum króna árið 2018 og nemur hann rétt rúmum sautján milljónum króna það sem af er þessu ári. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en þar kemur fram að aksturskostnaður þingmanna hafi dregist mjög saman á undanförnum árum. Í fréttinni kemur fram að aksturskostnaður þingmanna hafi numið tæpum 68 milljónum króna árið 2013, 56 milljónum árið 2014, 50 milljónum árið 2015, 53 milljónum árið 2016, 43 milljónum árið 2017, 31 milljón í fyrra og 25 milljónum það sem af er þessu ári. Þennan samdrátt má meðal annars rekja til breytinga á reglum um þingfarakostnað í byrjun árs 2018. Í fréttinni segir að þó aksturskostnaður hafi dregist saman hefur kostnaður við bílaleigubíla aukist. Ásmundur Friðriksson er með hæsta kostnaðinn vegna bílaleigubíla en upphæðin nemur 2,8 milljónum króna á árinu. Bent er á það að kostnaðurinn hafi að jafnaði verið 100 til 200 þúsund krónur á mánuði en í október hafi hann verið ríflega 1,6 milljónir króna. „Ég lít aldrei á þetta, hvorki hjá mér né öðrum,“ hefur blaðið eftir Ásmundi sem sagðist ekki hafa skýringar á þessum kostnaði í október á reiðum höndum. Hann hefði þó nýlega skipt um bílaleigubíl og hugsanlega mætti rekja kostnaðinn til þess. Það staðfestir Eggert Jónsson, forstöðumaður hjá Alþingi, en hann segir að inni í leigunni sé 20 þúsund kílómetra akstur á ári. Gleymst hafi að lesa af mælinum og kostnaðurinn í október sé því umframakstur síðustu tveggja ára. Ekki sé hægt að kenna Ásmundi um það. Fimm þingmenn eru með langtímaleigu á bílaleigubílum en auk Ásmundar eru það Birgir Þórarinsson, Guðjón S. Brjánsson, Haraldur Benediktsson og Sigurður Páll Jónsson. Ver­um ábyrg og mun­um alltaf að skafa vel af öll­um rúðum öku­tæk­is áður en haldið er út í um­ferðina. Sköf­um af ljós­um og núm­era­plöt­um í leiðinni, minn­ir lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu á í færslu sem hún birti á Face­book. Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í gær að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir Hlemmsvæðið. Svæðið mun taka stakkaskiptum á næstu árum verði framkvæmdir að veruleika. Borgarráð þarf að staðfesta deiliskipulagstillöguna til auglýsingar. Í desember árið 2018 var efnt til svokallaðar hugmyndaleitar þar sem leitað var eftir hugmyndum um framtíðarútlit svæðisins. Alls bárust þrjár tillögur um framtíð svæðisins frá Arkitekastofunum Landslagi, DLD land design og Mandaworks. Á vef Reykjavíkurborgar segir að tillögur arkitektastofanna Mandaworks og DLD hafi verið valdar til áframhaldandi þróunarvinnu við Hlemm fyrir endurhönnun svæðisins og gerð nýs deiliskipulags. „Meginmarkmið breytinganna er að skapa gott vistvænt umhverfi á Hlemmi fyrir gangandi vegfarendur, stað sem mun gegna mikilvægu hlutverki fyrir mannlíf og samgöngur á höfuðborgarsvæðinu,“ segir á vef Reykjavíkurborgar. Hlemmur eigi að vera kjörstaður fyrir gangangi og hjólandi vegfarendur, eftirsóttur bíllaus staður. Þannig verði akandi umferð beint frá svæðinu, nýr hjólastígur verði lagður meðfram svæðinu og tengir Hverfisgötu og Laugaveg upp að Bríetartúni. Þá verður Hlemmtorg rammað inn af smærri byggingum sem afmarki nýtt almenningsrými í austurhluta miðborgarinnar. Umbreyting norðurhluta Hlemmtorgs felist meðal annars í meiri gróðri en þar er nú og setbekkjum. Þess má geta að tillaga Mandaworks gerði ráð fyrir borðtennisbar og tillaga DLD gerði ráð fyrir gróðurhúsum á svæðinu. Skoða má deiliskipulagstillöguna nánar hér. Þjálfarinn og íþróttasérfræðingurinn Simon Brundish fylgist vel með enska boltanum og þar helst sínu uppáhaldsliði, toppliði Liverpool. Þeir rauðklæddu unnu í gær nokkuð þægilegan sigur á grönnum sínum í Everton en Liverpool vann 5-2 sigur eftir að hafa verið 4-2 yfir eftir bráðfjörugan fyrri hálfleik. Divock Origi fékk tækifæri í byrjunarliði Liverpool og nýtti það heldur betur en hann skoraði tvö mörk í leiknum. Simon birti athyglisverða tölfræði á Twitter-síðu sinni þar sem hann segir frá því að Origi sé með 29 mörk og sjö stoðsendingar í leikjum Liverpool sem fara fram í flóðljósum. Tölfræði hans í dagsbirtu er allt önnur. Þar hefur Origi einungis skorað fimm mörk og gefið eina stoðsendingu en hann er greinilega leikmaður sem líkar við kvöldleikina. „Einhver annar sem hefur spáð í því að kannski er Origi vampíra,“ skrifaði Simon léttur í bragði á Twitter í gær enda hans menn með átta stiga forskot á toppi deildarinnar. Gróðureldarnir í Ástralíu undanfarna mánuði hafa valdið mikilli mengun meðfram austurströnd landsins. Eldar hafa logað á þessum slóðum frá því í september og greindu yfirvöld umhverfismála í Nýja Suður-Wales frá því í morgun að loftmengun af þeirra völdum hefði verið einhver sú mesta sem mælst hefði í Ástralíu. Loftgæði hefðu oft verið slæm í eldum á þessum slóðum, í gróðureldum við Sydney árið 1994 og í eldunum frá desember 2001 og fram í janúar 2002, en um þá hefur oft verið talað um svört jól. Ástandið núna hefði varað mun lengur og útbreiðsla eldanna meiri. Miklir eldar hafa verið nærri Sydney undanfarnar vikur og margar viðvaranir hafa verið gefnar úr um slæm loftgæði. Í morgun loguðu eldar á meira en tíu stöðum í nágrenni borgarinnar. Mjög hefur fjölgað þeim sem leitað hafa læknishjálpar vegna öndunarörðugleika í Sydney.
