Lýstar kröfur í búið námu rúmlega 71 milljón króna og lauk gjaldþrotaskiptum í lok nóvember , án þess að greiðsla fengist upp í kröfur .
Verslunin var rekin í félaginu Ígló ehf. sem stofnað var af systrunum Helgu og Lovísu Ólafsdætrum árið 2008 og sérhæfði sig í hönnun barnafata .
Helga , sem titluð var eigandi og yfirhönnuður , tjáði sig um gjaldþrotið á sínum tíma og sagði það hafa verið nokkuð áfall .
Það hafi þurft þol og metnað til að hanna og framleiða þær 2500 mismunandi flíkur sem aðstandendur fyrirtækisins gerðu , meðan þess naut við .
Fyrirtækið byrjaði að leggja meiri áherslu á erlenda markaði árið 2013 og voru vörur þeirra á tímabili seldar í yfir hundrað verslunum .
„ Það er flókið fyrir lítil hönnunarfyrirtæki á Íslandi að lifa af .
Rekstrarumhverfið er ekki bara sveiflukennt heldur er mjög dýrt að þróa , framleiða , markaðssetja og selja íslenska hönnun hérlendis og erlendis , “ skrifaði Helga við fall fyrirtækisins .
„ Að hafa lifað af í þessu rekstrarumhverfi í ellefu ár er bara nokkuð gott ef miðað er við sambærileg fyrirtæki í þessum bransa .
Það er samt engin huggun í því og að þurfa að kveðja á þennan hátt hefur verið ansi erfitt .
Það er erfitt að sætta sig við það hvernig fór . “
Læknar á Landspítalanum eru mjög ósáttir við að laun þeirra lækki í niðurskurðaraðgerðum spítalans .
Landspítalinn sagði upp óunninni yfirvinnu lækna sem hluta af aðgerðum til að draga úr kostnaði við rekstur sjúkrahússins .
Reynir Arngrímsson , formaður Læknafélags Íslands , sagði í Morgunútvarpinu á Rás 2 að mikil óánægja væri vegna þessa .
Félagið hefur mótmælt því að hluta ráðningarsamninga lækna sé sagt upp .
Hann segir ólaunaða yfirvinnu í raun rangnefni .
„ Henni er ætlað að greiða fyrir tilfallandi yfirvinnu með jöfnum hætti sem þarf ekki að vera að tímamæla . “
Þetta eigi til dæmis við þegar læknir sé með veikan sjúkling og geti ekki farið , skurðlæknir sé í aðgerð eða læknir að innrita sjúkling fram yfir lok vaktar eða dagvinnu .
„ Í dag er þetta ekki greitt .
Það fæst ekki greidd yfirvinna samkvæmt stimpilmælingunni .
Þá hefur verið gripið til þess að hafa fasta yfirvinnu sem tekur á þessu að meðaltali . “
Reynir gagnrýnir að uppsögn óunninnar yfirvinnu nái bara til lækna .
Samkvæmt nýjustu tölum sem Læknafélagið hefur hafi yfirstjórn haft tvöfalda óunna yfirvinnu á við lækna .
„ Við teljum mjög eðlilegt að starfsmenn í framlínu eins og læknar og hjúkrunarfræðingar fái þessa föstu yfirvinnu greidda því að þeir geta ekki hlaupið í burtu en það er mjög sérkennilegt að yfirstjórn spítalans þurfi að gera þetta og í raun og veru skammti sér 400 milljónir í fasta yfirvinnu . “
Reynir sagði uppsögn óunninnar yfirvinnu hafa slæm áhrif á starfsanda .
Hann sagðist telja að flestir láti þetta yfir sig ganga en taldi að einhverjir kynnu að hætta .
Tíst namibískrar konu á Twitter hefur vakið þó nokkra athygli íslenskra netverja .
Konan , Ndilimeke , spyr hvort Jóhannes Stefánsson , fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarmaður Samherjafélaganna , sé einhleypur .
Fjöldi Íslendinga hefur líkað við tíst Ndilimeke og hefur meðal annars Margrét Erla Maack endurbirt það á sinni Twitter-síðu .
Ndilimeke mætti hugsanlega teljast sem namibískur áhrifavaldur , þar sem hún er með yfir 4300 fylgjendur á Instagram og 1200 fylgjendur á Twitter .
Gleðifréttir fyrir Ndilimeke , en samkvæmt Facebook-síðu Jóhannesar er hann einhleypur .
Árið 2018 kvaðst um þriðjungur íbúa á Íslandi stríða við langvarandi veikindi .
Hlutfall fólks sem býr við takmarkanir í daglegu lífi sökum heilsufars hefur aukist undanfarin 10 ár .
Árið 2008 var hlutfallið 16,1% , en það var 26,0% 10 árum seinna .
Seinustu ár hefur aukningin ekki verið tölfræðilega marktæk á milli ára , en hlutfallið 2018 er þó marktækt hærra en fyrir fimm árum .
Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum úr lífskjararannsókn Hagstofu Íslands .
Hlutfallið á Íslandi árið 2018 er svipað og hlutfallið er að jafnaði í ríkjum Evrópusambandsins , en árið 2018 bjuggu að meðaltali 24,7% Evrópubúa við heilsufarslegar takmarkanir .
Árið 2018 fundu fæstir fyrir heilsufarslegum takmörkunum á Möltu , eða 11,9% , en flestir í Lettlandi , eða 40,0% .
Mælingarnar miða við bæði þá sem búa við nokkrar takmarkanir og verulegar takmarkanir vegna heilsubrests .
Á Íslandi skiptist hlutfallið nokkuð jafnt á milli þeirra sem telja að heilsufar hamli daglegu lífi nokkuð og þeirra sem lifa með verulegar takmarkanir vegna heilsubrests .
Langtímaveikindi eru algengari meðal kvenna og hafa verið það frá upphafi mælinga , árið 2004 .
Að sama skapi eru konur líklegri til að finna fyrir takmörkunum í daglegu lífi vegna heilsubrests , miðað við karla .
Árið 2018 bjó ein af hverjum þremur konum við heilsufarslegar takmarkanir í daglegu lífi borið saman við einn af hverjum fimm körlum sama ár .
Þeir sem eru eldri eiga frekar við langvarandi veikindi að stríða og búa við meiri heilsufarslegar takmarkanir en yngra fólkið .
Til dæmis á þriðjungur í aldurshópnum 45 - 54 ára við langvarandi veikindi að stríða borið saman við nær helming í aldurshópnum 65 ára og eldri .
Hærra hlutfall fólks með grunnmenntun býr við langvarandi veikindi og takmarkanir sökum heilsufars borið saman við fólk með háskólamenntun .
Árið 2018 bjó til dæmis um einn af hverjum þremur með grunnmenntun við heilsufarslegar takmarkanir borið saman við einn af hverjum fimm með háskólamenntun .
Hlutfall þeirra sem lifa með heilsufarslegar takmarkanir í daglegu lífi er einnig hærra meðal þeirra með lágar tekjur , en einn af hverjum þremur í lægsta og öðrum tekjufimmtungi bjó við takmarkanir vegna heilsufars árið 2018 .
Í hærri tekjufimmtungum hamlaði heilsufar einum af hverjum fjórum til einum af hverjum fimm .
Niðurstöðurnar eru unnar úr lífskjararannsókn Hagstofu Íslands .
Samhliða birtingu á niðurstöðum fyrir árin 2015 - 2018 hafa eldri niðurstöður verið endurskoðaðar til að samræmast reglugerðum Hagstofu Evrópusambandsins , Eurostat .
Áhrif endurskoðunar er sú að hærra hlutfall telst með takmarkanir sökum heilsufars en áður frá og með árinu 2007 .
Hlutfall fólks sem býr við takmarkanir í daglegu lífi sökum heilsufars byggir á svörum fólks við eftirfarandi spurningu : Í sex mánuði samfleytt eða lengur , hefur heilsufar þitt hamlað eða takmarkað þig á einhvern hátt í einhverju sem reikna má með að flest fólk geti gert ?
Hlutfallið miðar við bæði þá sem takmarkast og takmarkast verulega sökum heilsufars .
Lífskjararannsókn Hagstofunnar er langsniðsrannsókn þar sem haft er samband við hátt í 5 þúsund heimili árlega .
Úrtak rannsóknarinnar er fengið á þann hátt að einstaklingar eru valdir með slembni úr þjóðskrá og þar með heimilið sem þeir tilheyra .
Sá einstaklingur sem er valinn í úrtakið kallast valinn svarandi og veitir hann upplýsingar um aðstæður heimilis , sínar eigin og annarra heimilismeðlima .
Hér er greiningin miðuð við valinn svaranda .
Frekari upplýsingar um lífskjararannsóknina má lesa í lýsigögnum .
Kostnaður vegna bílaleigubíla fyrir þingmenn nam rúmum 19 milljónum króna árið 2018 og nemur hann rétt rúmum sautján milljónum króna það sem af er þessu ári .
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en þar kemur fram að aksturskostnaður þingmanna hafi dregist mjög saman á undanförnum árum .
Í fréttinni kemur fram að aksturskostnaður þingmanna hafi numið tæpum 68 milljónum króna árið 2013 , 56 milljónum árið 2014 , 50 milljónum árið 2015 , 53 milljónum árið 2016 , 43 milljónum árið 2017 , 31 milljón í fyrra og 25 milljónum það sem af er þessu ári .
Þennan samdrátt má meðal annars rekja til breytinga á reglum um þingfarakostnað í byrjun árs 2018 .
Í fréttinni segir að þó aksturskostnaður hafi dregist saman hefur kostnaður við bílaleigubíla aukist .
Ásmundur Friðriksson er með hæsta kostnaðinn vegna bílaleigubíla en upphæðin nemur 2,8 milljónum króna á árinu .
Bent er á það að kostnaðurinn hafi að jafnaði verið 100 til 200 þúsund krónur á mánuði en í október hafi hann verið ríflega 1,6 milljónir króna .
„ Ég lít aldrei á þetta , hvorki hjá mér né öðrum , “ hefur blaðið eftir Ásmundi sem sagðist ekki hafa skýringar á þessum kostnaði í október á reiðum höndum .
Hann hefði þó nýlega skipt um bílaleigubíl og hugsanlega mætti rekja kostnaðinn til þess .
Það staðfestir Eggert Jónsson , forstöðumaður hjá Alþingi , en hann segir að inni í leigunni sé 20 þúsund kílómetra akstur á ári .
Gleymst hafi að lesa af mælinum og kostnaðurinn í október sé því umframakstur síðustu tveggja ára .
Ekki sé hægt að kenna Ásmundi um það .
Fimm þingmenn eru með langtímaleigu á bílaleigubílum en auk Ásmundar eru það Birgir Þórarinsson , Guðjón S. Brjánsson , Haraldur Benediktsson og Sigurður Páll Jónsson .
Verum ábyrg og munum alltaf að skafa vel af öllum rúðum ökutækis áður en haldið er út í umferðina .
Sköfum af ljósum og númeraplötum í leiðinni , minnir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á í færslu sem hún birti á Facebook .
Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í gær að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir Hlemmsvæðið .
Svæðið mun taka stakkaskiptum á næstu árum verði framkvæmdir að veruleika .
Borgarráð þarf að staðfesta deiliskipulagstillöguna til auglýsingar .
Í desember árið 2018 var efnt til svokallaðar hugmyndaleitar þar sem leitað var eftir hugmyndum um framtíðarútlit svæðisins .
Alls bárust þrjár tillögur um framtíð svæðisins frá Arkitekastofunum Landslagi , DLD land design og Mandaworks .
Á vef Reykjavíkurborgar segir að tillögur arkitektastofanna Mandaworks og DLD hafi verið valdar til áframhaldandi þróunarvinnu við Hlemm fyrir endurhönnun svæðisins og gerð nýs deiliskipulags .
„ Meginmarkmið breytinganna er að skapa gott vistvænt umhverfi á Hlemmi fyrir gangandi vegfarendur , stað sem mun gegna mikilvægu hlutverki fyrir mannlíf og samgöngur á höfuðborgarsvæðinu , “ segir á vef Reykjavíkurborgar .
Hlemmur eigi að vera kjörstaður fyrir gangangi og hjólandi vegfarendur , eftirsóttur bíllaus staður .
Þannig verði akandi umferð beint frá svæðinu , nýr hjólastígur verði lagður meðfram svæðinu og tengir Hverfisgötu og Laugaveg upp að Bríetartúni .
Þá verður Hlemmtorg rammað inn af smærri byggingum sem afmarki nýtt almenningsrými í austurhluta miðborgarinnar .
Umbreyting norðurhluta Hlemmtorgs felist meðal annars í meiri gróðri en þar er nú og setbekkjum .
Þess má geta að tillaga Mandaworks gerði ráð fyrir borðtennisbar og tillaga DLD gerði ráð fyrir gróðurhúsum á svæðinu .
Skoða má deiliskipulagstillöguna nánar hér .
Þjálfarinn og íþróttasérfræðingurinn Simon Brundish fylgist vel með enska boltanum og þar helst sínu uppáhaldsliði , toppliði Liverpool .
Þeir rauðklæddu unnu í gær nokkuð þægilegan sigur á grönnum sínum í Everton en Liverpool vann 5 - 2 sigur eftir að hafa verið 4 - 2 yfir eftir bráðfjörugan fyrri hálfleik .
Divock Origi fékk tækifæri í byrjunarliði Liverpool og nýtti það heldur betur en hann skoraði tvö mörk í leiknum .
Simon birti athyglisverða tölfræði á Twitter-síðu sinni þar sem hann segir frá því að Origi sé með 29 mörk og sjö stoðsendingar í leikjum Liverpool sem fara fram í flóðljósum .
Tölfræði hans í dagsbirtu er allt önnur .
Þar hefur Origi einungis skorað fimm mörk og gefið eina stoðsendingu en hann er greinilega leikmaður sem líkar við kvöldleikina .
„ Einhver annar sem hefur spáð í því að kannski er Origi vampíra , “ skrifaði Simon léttur í bragði á Twitter í gær enda hans menn með átta stiga forskot á toppi deildarinnar .
Gróðureldarnir í Ástralíu undanfarna mánuði hafa valdið mikilli mengun meðfram austurströnd landsins .
Eldar hafa logað á þessum slóðum frá því í september og greindu yfirvöld umhverfismála í Nýja Suður-Wales frá því í morgun að loftmengun af þeirra völdum hefði verið einhver sú mesta sem mælst hefði í Ástralíu .
Loftgæði hefðu oft verið slæm í eldum á þessum slóðum , í gróðureldum við Sydney árið 1994 og í eldunum frá desember 2001 og fram í janúar 2002 , en um þá hefur oft verið talað um svört jól .
Ástandið núna hefði varað mun lengur og útbreiðsla eldanna meiri .
Miklir eldar hafa verið nærri Sydney undanfarnar vikur og margar viðvaranir hafa verið gefnar úr um slæm loftgæði .
Í morgun loguðu eldar á meira en tíu stöðum í nágrenni borgarinnar .
Mjög hefur fjölgað þeim sem leitað hafa læknishjálpar vegna öndunarörðugleika í Sydney .
